Keflvíkingar með tvo erlenda leikmenn
Óvíst með framtíð Porsche Landry
Kvenna lið Keflavíkur hefur samið við annan erlendan leikmann, Diamber Johnson, sem áður lék með Hamri. Falur Harðarson, formaður Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, staðfesti samninginn við Vísi og segir að Porsche Landry sé enn leikmaður Keflavíkur.
„Ekkert hefur verið ákveðið með Porsche og eins og staðan er í dag er hún leikmaður Keflavíkur. Okkur bauðst hins vegar að bæta Diamber við hópinn og þar sem glugginn lokar i dag var ákveðið að semja við hana og taka ákvörðun með framhaldið í næsta mánuði,“ sagði Falur í samtali við Vísi.
Fari svo að Keflvíkingar ákveði að halda báðum leikmönnum mega þær ekki vera samtímis innan vallar í leikjum liðsins. Keflvíkingar leika gegn Haukum í undanúrslitum bikarsins á morgun sunnudag.