Keflvíkingar lögsækja Guðjón
Knattspyrnudeild Keflavíkur hyggst leita réttar síns fyrir dómstólum eftir að Guðjón Þórðarson rifti samningum sínum við deildina í dag. Þetta staðfesti Rúnar V. Arnarson, formaður deildarinnar í samtali við Víkurfréttir fyrir stundu. Kristján Guðmundsson, aðstoðarþjálfari mun stýra liðinu þar til varanlegur staðgengill finnst.
"Þessi yfirlýsing Guðjóns er fráleit," sagði Rúnar. "Hann getur ekki sagt upp samningnum. Samningurinn er skotheldur og þetta mál fer sína leið."
Rúnar segist ekki hafa haft grun um þessa atburðarás, þó Guðjón hafi virst áhugalaus upp á síðkastið. "Við látum þetta ekki á okkur fá og reynum að undirbúa okkur eftir fremsta megni fyrir komandi sumar."
Víkurfréttir náðu ekki tali af Guðjóni við vinnslu þessarar fréttar