Keflvíkingar leika í Nike
Keflavík hefur gert þriggja ára samning við Icepharma um að allir flokkar Keflavíkur í knattspyrnu spili í Nike-búningum en skrifað var undir samninginn í félagsheimili félagsins í gær. Það voru þær Þuríður Hrund Hjartardóttir og Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir frá Icepharma sem skrifuðu undir samninginn ásamt Þorsteini Magnússyni, formanni Knattspyrnudeildar.
Þess má geta að Keflavík lék áður í Nike á árunum 1999 til 2003. Það er Knattspyrnudeild Keflavíkur mikil ánægja að samningurinn sé í höfn og að Icepharma og Nike hafi bæst í öflugan hóp samstarfsaðila deildarinnar. Búningar Keflavíkur munu áfram fást í versluninni K-Sport og staðfesti Sigurður Björgvinsson, eigandi K-Sport, það við undirritun samningsins.
Keflavík hefur leikið í Puma undanfarin tíu ár og vill Knattspyrnudeild þakka heildversluninni Tótem fyrir gott samstarf þann tíma en Tótem hefur ákveðið að hætta með Puma vörur.