Keflvíkingar kynntir til leiks
Hér má sjá kynningu á leikmönnum Keflavíkur í Pepsi-deild karla í knattspyrnu en keppni í deildinni hefst á sunnudag. Kvikmyndagerpamaðurinn Garðar Örn Arnarson tók saman myndbönd þar sem hver og einn leikmaður kynnir sjálfan sig til leiks.
Myndböndin má sjá hér á heimasíðu Keflavíkur.
Fyrsti leikurinn verður gegn Fylki á Fylkisvellinum sunnudaginn 6. maí kl. 19:15.