Keflvíkingar komnir í úrslit
Keflavík komst í kvöld í úrslit bikarkeppni KKÍ og Doritos þegar þeir lögðu ÍR-inga að velli, 95:81, í Keflavík. Leikurinn var í járnum allan tíman. Staðan í hálfleik var 45:46 gestunum í hag en þegar síðasti leikhlutinn var hálfnaður tóku heimamenn öll völd á vellinum og sigruðu verðskuldað.Magnús Þór Gunnarsson átti skínandi leik hjá Keflavík í restina og setti niður hverja þriggjastiga körfuna á fætur annari. "Við létum boltan ganga vel í sókninni og þar að leiðandi opnaðist fyrir mig í skotunum. Ég tók fríu skotin sem ég fékk og þau duttu vel í kvöld", sagði Magnús ánægður í leikslok.