Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Keflvíkingar kanalausir í kvöld
Fimmtudagur 1. febrúar 2007 kl. 12:59

Keflvíkingar kanalausir í kvöld

Fjórir leikir fara fram í Iceland Express deild karla í körfuknattleik í kvöld og marka þeir upphaf 15. umferðar í deildinni. Keflvíkingar sendu Isma´il Muhammad heim á dögunum og er ekki bandarískur leikmaður kominn til liðsins í hans stað. Keflvíkingar leika því kanalausir gegn Haukum að Ásvöllum í kvöld kl. 19:15.

 

,,Þetta mun reyna á karakterinn í liðinu,” sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, við Víkurfréttir. ,,Við lítum jákvætt á þetta og tökum bara einn leik fyrir í einu og snúum bara dæminu okkur í hag,” sagði Sigurður sem er þessa dagana að skoða erlenda leikmenn en Bandaríkjamaður ætti að vera kominn í raðir Keflvíkinga áður en langt um líður. ,,Það er ágætt fyrir strákana í liðinu að fara í leiki þar sem Keflavík er fyrirfram ekki talið sigurstranglegra liðið,” sagði Sigurður og átti þá við undanfarna leiki en óneitanlega eru Keflvíkingar sigurstranglegri þegar þeir mæta botnliði Hauka í kvöld.

 

Friðrik Ragnarsson hyggur á hefndir með Grindavíkurliðinu í kvöld þegar þeir gulu heimsækja ÍR í Seljaskóla. ÍR lagði Grindavík í undanúrslitum Lýsingarbikarsins um síðustu helgi í stórkostlegum leik sem var æsispennandi undir lokin en framlengja þurfti þann leik. Sá leikur var jafnframt sá fyrsti hjá Johnathan Griffin sem hafði aðeins verið á landinu í einn dag en sallaði engu að síður niður 28 stigum gegn ÍR.

 

Allir leikir umferðarinnar hefjast kl. 19:15

 

Fimmtudagur: 1. feb:

Haukar-Keflavík

ÍR-Grindavík

Hamar/Selfoss-Skallagrímur

Þór Þorlákshöfn-Snæfell

 

Föstudagur 2. feb:

Njarðvík-Tindastóll

Fjölnir-KR

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024