Keflvíkingar Íslandsmeistarar í 4. flokki
Keflavík eignaðist á föstudaginn Íslandsmeistara í 4.flokki C í knattspyrnu drengja þegar þeir unnu Selfyssinga 6-2 á Nettóvellinum. Jón Arnór Sverrisson skoraði fjögur marka Keflvíkinga en hann hefur ekki langt að sækja markheppnina, enda sonur Sverris Þórs Sverrissonar sem gerði sjálfur garðinn frægan með Keflvíkingum á árum áður. Arnór Ingi Ingvason skoraði svo hin tvö mörkin fyrir Keflavík.
Þjálfarar drengjanna eru þeir Jóhann Birnir og Arngrímur Jóhann, sem komu einnig A liðinu í úrslitaleik um daginn og tapaðist sá leikur.
Þjálfararnir Arngrímur og Jóhann glaðir í leikslok
Jón Arnór skoraði fjögur mörk í leiknum