Keflvíkingar í undanúrslit í bikarnum
Eftir stórsigur á Grindavík
Keflvíkingar eru komnir í undanúrslit í bikarkeppni kvenna í körfubolta eftir öruggan sigur á grönnum sínum í Grindavík 60:92. Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en eftir það skildu leiðir og Keflvíkingar tóku öll völd á vellinum.
Ungu stelpurnar hjá Keflavík léku virkilega vel, með þær Emelíu Ósk og Birnu Valgerði fremstar í flokki en liðsheildin var þó gríðarlega sterk hjá Keflvíkingum sem rúlluðu á mörgum leikmönnum.
Grindvíkingar eru enn að bíða eftir að erlendur leikmaður þeirra verði löglegur en nokkrir lykilleikmenn náðu sér þó alls ekki að strik í leiknum. Petrúnella Skúladóttir skoraði 22 stig fyrir heimakonur en aðrar voru nokkuð frá sínu besta..
Grindavík-Keflavík 60-92 (10-14, 16-29, 15-23, 19-26)
Grindavík: Petrúnella Skúladóttir 21/8 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 11/7 fráköst, Angela Björg Steingrímsdóttir 6, Íris Sverrisdóttir 6, María Ben Erlingsdóttir 6/5 fráköst, Lovísa Falsdóttir 4, Arna Sif Elíasdóttir 3, Hrund Skúladóttir 3, Vigdís María Þórhallsdóttir 0, Elísabet María Magnúsdóttir 0, Ingibjörg Jakobsdóttir 0, Ólöf Rún Óladóttir 0.
Keflavík: Emelía Ósk Gunnarsdóttir 22/4 fráköst, Birna Valgerður Benónýsdóttir 16/3 varin skot, Ariana Moorer 11/9 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 11/9 fráköst, Kamilla Sól Viktorsdóttir 8, Irena Sól Jónsdóttir 6, Katla Rún Garðarsdóttir 5, Þóranna Kika Hodge-Carr 5, Elsa Albertsdóttir 4/6 stoðsendingar, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 4/4 fráköst, Erna Hákonardóttir 0, Svanhvít Ósk Snorradóttir 0.