HSS
HSS

Íþróttir

Keflvíkingar í undanúrslit
Laugardagur 9. janúar 2016 kl. 18:36

Keflvíkingar í undanúrslit

Sigur í fyrsta leik án Margrétar

Keflavíkurkonur eur komnar í undanúrslit bikarkeppninnar í körfubolta eftir öruggan sigur gegn Skallagrími á heimavelli sínum. Keflvíkingar höfðu 24 stiga sigur, 93:69 þar sem þau Marín Rós Karlsdóttir og Sigurður Ingimundarson stjórnuðu liðinu eftir að Margréti Sturlaugsdóttur hafði verið sagt upp störfum í gærkvöldi.

Melissa Zorning var stigahæst í liði Keflvíkinga með 20 stig og Sandra Lind bætti við 18 stigum, sjö fráköstum og níu stoðsendingum. Tölfræði leiksins má sjá hér.

Bílakjarninn
Bílakjarninn