HSS
HSS

Íþróttir

Keflvíkingar í átta liða úrslit
Mánudagur 11. desember 2006 kl. 23:36

Keflvíkingar í átta liða úrslit

Keflavík tryggði sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum karla í Lýsingarbikarkeppninni í körfuknattleik með 85-111 sigri á Fjölni í Grafarvogi.

Keflvíkingar höfðu yfirhöndina allan leikinn og var sigur þeirra í raun aldrei í hættu. Tölfræði leiksins hefur enn ekki borist en hún verður sett inn á vf.is eins fljótt og auðið er.

Þau lið sem þegar hafa tryggt sér þátttökurétt í 8 liða úrslitum eru ÍR, Keflavík, Hamar/Selfoss, Grindavík, KR og Skallagrímur. Á morgun kemur svo í ljós hvaða tvö lið eiga eftir að bætast við en til greina koma FSu, Mostri, Hvíti riddarinn og KR B.

VF-myndir/ [email protected]

 

 

 

 

 


 

Bílakjarninn
Bílakjarninn