Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Keflvíkingar hjá W.B.A
Sunnudagur 27. febrúar 2011 kl. 13:56

Keflvíkingar hjá W.B.A

Arnór Ingvi Traustason er 17 ára gamall leikmaður Keflavíkur í knattspyrnu ásamt því að stunda nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja á náttúrufræðibraut. Á dögunum bauðst Arnóri ásamt liðsfélaga sínum Ásgrími Rúnarssyni að æfa með enska úrvalsdeildarliðinu W.B.A í vikutíma. Arnór Ingvi sem spilar sem miðjumaður hjá Keflavík lék þrjá leiki með liðinu í Pepsi deildinni í fyrra og skoraði eitt mark. Félögin hafa verið í samstarfi undanfarið og í fyrra komu tveir leikmenn W.B.A til Keflvíkinga og núna fengu þessir tveir af efnilegustu knattspyrnumönnum Keflvíkinga að spreyta sig hjá hinu fornfræga félagi og með piltunum í för var yfirþjálfari yngri flokka hjá félaginu Zoran Ljubicic.


Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Hann var rekinn degi áður en við komum, svo að nei því miður fengum við ekki að hitta stjórann. Svo var Roy Hodgson ráðinn á meðan við vorum úti en við sáum hann ekki heldur. Við æfðum með liði félagsins sem er skipað leikmönnum 18 ára og yngri. Eftir okkar æfingu litum við á aðalliðið þar sem þeir undirbjuggu sig fyrir leik gegn West Ham,“ sagði Arnór aðspurður um hvort þeir hefðu æft undir stjórn Roberto Di Matteo með aðalliði W.B.A.

Hvernig leist þér á aðstæður hjá félaginu?
„Þær eru mjög góðar og snyrtilegar, allir eru félagar þarna og vel séð um strákana. Svo borðuðu allir saman, bæði aðalliðið og unglingaliðið, það var gaman að sjá aðalliðið þarna. Birmingham er einnig ágæt borg og frekar stór. Þ.a.l. eru strákarnir mun einangraðari en hérna heima. Strákarnir eru ekkert að hittast eftir æfingar eins og tíðkast hjá okkur.“


Hvernig gekk þér persónulega?
„Mér persónulega gekk alveg ágætlega.“


Er eitthvað sem kom þér á óvart þarna úti?

„Að strákarnir þarna fara í skóla tvo tíma á dag. Æfa á morgnana og allt sem fylgir því og svo er skóli eftir það. Annars ekkert óvenjulegt sem ég man eftir.“


Ertu búinn að setja þér markmið fyrir komandi tímabil?

„Ég er búinn að vera æfa með meistaraflokki núna allt undirbúningstímabilið og spilað flest alla leikina, og já það eru komin markmið fyrir sumarið.“


Voru einhver skemmtileg atvik sem komu upp í ferðinni?

„Það komu upp nokkur atriði, t.d. var Ásgrímur að jarða einhvern framherja þarna úti og hann var orðinn verulega pirraður og ýtti svona ansi hressilega í bakið á Ásgrími, það var nokkuð gott.“

Þegar Arnór Ingvi er spurður út í framtíðar áform hans þá segir hann stefnuna ávallt vera á atvinnumennskunni og bætir því við að hann sé ekki viss hvort að einhverjar viðræður séu í gangi milli Keflavíkur og W.B.A. á þessari stundu.