Keflvíkingar halda á Hlíðarenda
Keflavík heldur til Reykjavíkur í kvöld þar sem þeir leika á móti Valsmönnum á Hlíðarenda í Landsbankadeildinni. Hefst leikurinn kl. 19:15 en Keflvíkingar eiga harma að hefna því Valsmenn rúlluðu yfir þá á Keflavíkurvelli í fyrri umferðinni, 1-5.
Keflavík og Valur hafa leikið 76 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958 þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli. Þess má geta að Sigurður Albertsson skoraði mark Keflavíkur í þeim leik. Keflavík hefur unnið 25 leikjanna, Valur hefur hins vegar sigrað 31 sinni en 20 leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 111-121, Val í hag. Stærsti sigur Vals í leikjum liðanna var 7-1 sigur á Hlíðarenda árið 1987 og það er jafnframt mesti markaleikur sem liðin hafa háð. Stærstu sigrar Keflavíkur hafa verið með fjögurra marka mun, tveir 4-0 sigrar árið 1973 og 5-1 sigur árið 1964. Tveir leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Val; Guðmundur Steinarsson skoraði sigurmarkið í 1-0 sigri á Hlíðarenda árið 1998 og Stefán Örn Arnarson skoraði í fyrri leik liðanna í sumar.
(sögubrot af www.keflavik.is)
Staðan í deildinni
VF-mynd/ frá fyrri viðureign liðanna í sumar