Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflvíkingar fara á þjóðarleikvanginn
Sigurbergur Elisson skorar gegn Fram.
Þriðjudagur 10. júní 2014 kl. 16:22

Keflvíkingar fara á þjóðarleikvanginn

Keflvíkingar sækja Framara heim í Laugardalinn í Pepsi-deildinni í knattspyrnu. Fyrir leikinn er Keflavík í 3.-4. sæti deildarinnar með 11 stig en Fram er í 9. sætinu með 5 stig. Þetta verður fyrsti leikur Fram á heimavelli sínum þetta sumarið og því er upplagt að skella sér í Laugardalinn og sjá skemmtilegan leik á þjóðarleikvanginum. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Keflvíkingar halda áfram upphitun á heimasíðu sinni en hér að neðan má sjá samantekt frá viðureignum liðanna í gegnum árin.

Efsta deild
Keflavík og Fram hafa leikið 90 leiki í efstu deild. Sá fyrsti fór fram árið 1958 og lauk með 2-2 jafntefli þar sem Högni Gunnlaugsson og Hólmbert Friðjónsson skoruðu fyrir Keflavík. Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin; Keflavík hefur unnið 35 leiki en Fram 28 og liðin hafa skilið jöfn 27 sinnum.  Markatalan er 135-120, okkar liði í vil.  Stærsti sigur Framara var 5-0 árið 2009 og Keflavík hefur þrisvar unnið með 5 marka mun; 5-0 árin 1965 og 2012 og 6-1 árið 2004. Mesti markaleikur liðanna var þó 6-5 heimasigur Keflavíkur 1964 en það ár varð Keflavík einmitt Íslandsmeistari í fyrsta sinn.
Sjö leikmenn sem í dag leika með Keflavík hafa skorað gegn Fram í efstu deild; Hörður Sveinsson hefur gert sex mörk, Sigurbergur Elísson, Jóhann B. Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson hafa gert þrjú mörk og Einar Orri Einarsson, Bojan Stefán Ljubicic og Frans Elvarsson eitt hver.  Það er hins vegar Þórarinn Kristjánsson sem hefur gert flest mörk fyrir Keflavík gegn Fram í efstu deild eða 10, næstir koma feðgarnir Steinar Jóhannsson og Guðmundur Steinarsson með átta mörk hvor.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Bikarkeppnin
Liðin hafa leikið 11 leiki í bikarkeppninni og þar hafa Framarar betur. Framarar hafa sigrað 7 sinnum en Keflavík 4 sinnum. Markatalan er 13-17 fyrir Fram.

Í fyrra
Liðin léku að sjálfsögðu tvisvar í Pepsi-deildinni síðasta sumar.  Fram vann fyrri leikinn á Nettóvellinum 2-1.  Sigurbergur Elísson gerði mark Keflavíkur í þeim leik en Hólmbert Friðjónsson og Steven Lennon skoruðu mörk Framara.  Keflavík vann síðan seinni leikinn á Laugardalsvelli 3-2 en þar gerðu Einar Orri Einarsson, Bojan Stefán Ljubicic og Hörður Sveinsson mörk Keflvíkinga en Viktor Bjarki Arnarsson og Haukur Baldvinsson skoruðu fyrir Fram.

Bæði lið
Þó nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir bæði lið þessi í gegnum árin. Þar má nefna Ragnar heitinn Margeirsson, Jón Gunnar Eysteinsson, Bjarna Hólm Aðalsteinsson, Andra Stein Birgisson, Guðmund Steinarsson, Helga Björgvinsson og Ólaf Pétursson. Nú er einn fyrrverandi leikmaður Fram í liði  Keflavíkur en það er Paul McShane.

Síðustu leikir
Úrslit leikja Fram og Keflavíkur á heimavelli Framara hafa orðið þessi undanfarin ár:

2013  Fram - Keflavík  2-3  Einar Orri Einarsson, Bojan Stefán Ljubicic og Hörður Sveinsson
2012  Fram - Keflavík  0-2  Frans Elvarsson og Guðmundur Steinarsson
2011  Fram - Keflavík  1-0  
2010  Fram - Keflavík  2-1  Sjálfsmark
2009  Fram - Keflavík  5-0  
2008  Fram - Keflavík  0-2  Þórarinn Kristjánsson 2
2007  Fram - Keflavík  2-2  Guðmundur Steinarsson og Þórarinn Kristjánsson
2005  Fram - Keflavík  2-3  Stefán Örn Arnarson, Hörður Sveinsson og Hólmar Örn Rúnarsson
2004  Fram - Keflavík  1-6  Hólmar Örn Rúnarsson 2, Hörður Sveinsson 2, Þórarinn Kristjánsson og Guðmundur Steinarsson.
2002  Fram - Keflavík  1-1  Magnús Þorsteinsson