Keflvíkingar fá Norður-Íra í Inter-Toto

Í 1. umferðinni lenda Keflvíkingar á móti liði frá Norður-Írlandi. Miðað við stöðuna í deildinni þar eru það Dungannon, Cliftonville og Ballymena sem berjast um það sæti. Fyrri leikirnir í 1. umferð verða 17.-18. júní en þeir síðari 24.-25. júní. Komist Keflavík áfram í 2. umferð verða andstæðingar okkar norska liðið Lilleström. Það lið er kunnuglegt enda hafa fjölmargir íslenskir leikmenn leikið með því í gegnum árin, m.a. Rúnar Kristinsson, Ríkharður Daðason, Gylfi Einarsson og Heiðar Helguson. Næsta skref þar á eftir er síðan 3. umferðin og þá tekur við lið frá Englandi. Eins og stendur er það Bolton sem situr í InterToto-sæti þar í landi en það er aldrei að vita nema stórlið eins og Arsenal endi í keppninni.