Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflvíkingar fá Dana í framlínuna
Jeppe í baráttunni með KR í sumar. Mynd/fotbolti.net
Þriðjudagur 1. nóvember 2016 kl. 10:05

Keflvíkingar fá Dana í framlínuna

Keflvíkingar hafa klófest í danska knattspyrnumanninn Jeppe Hansen og hafa gert tveggja ára samning við leikmanninn sem leikið hefur á Íslandi undanfarin tvö ár.

Danski framherjinn, oft kallaður Jeppinn varð Íslandsmeistari með Stjörnunni 2014 og skoraði þá sex mörk í níu leikjum en alls skoraði hann 18 mörk í 44 leikjum með Garðabæjarliðinu. Hann fór hins vegar til KR síðla sumars 2016 en náði sér ekki á strik í markaskorun í Vesturbænum.

Keflvíkingar hafa mikinn hug á því að gera betur á næsta tímabili en nýlega réðu þeir nýjan þjálfara, Guðlaug Baldursson sem hafði verið aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara FH undanfarin ár. Með komu Danans vonast Keflvíkingar til að snerpa á markaskorun og sóknarleiknum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn