Keflvíkingar ekkert annað en heppnir að vera komnir áfram í Coca-Cola bikarnum

Guðmundur Steinarsson skoraði tvö mörk fyrir Keflavík og lagði upp eitt sem Hólmar Örn Rúnarsson, Bói, skoraði.
Keflvíkingar geta þakkað heilladísunum fyrir að hafa komist í gegnum þennan leik með sigri því þeir áttu hann alls ekki skilinn enda voru þeir vægast sagt slakir. Voru að spila á móti U23 ára liði ÍA en vart mátti sjá hvort liðið væri ungmennalið enda spiluðu Skagamenn boltanum vel saman og áttu meira í leiknum ef eitthvað var, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þegar líða tók á leikinn náðu Keflvíkingar yfirhöndinni og fengu fullt af færum til að ljúka leiknum en boltinn vildi oft á tíðum ekki inn og til að mynda skaut Þórarinn Kristjánsson þrisvar í tréverkið.
Ljósið í myrkrinu hjá Keflvíkingum er að þeir eru komnir í 8-liða úrslit og það verður ekki tekið af þeim og er ánægjulegt að þeir skuli hafa náð að klára leikinn þrátt fyrir að eiga svo slakan leik. Með svona spilamennsku í næsta leik verður þeim refsað, það er nokkuð ljóst.
Nokkrir leikmenn hjá Keflavík voru að spila vel, s.s. Adolf Sveinsson sem gafst aldrei upp, Guðmundur Steinarsson sem skoraði tvö mörk og lagði upp eitt, Þórarinn Kristjánsson átti góðar rispur og svo stóð Haraldur Guðmundsson sig ágætlega í vörninni ásamt Guðjóni Antoníussyni, ungum og efnilegum leikmanni sem var að spila sinn fyrsta leik í sumar. Þá átti Ólafur Ívar Jónsson góðan leik í miðverðinum eftir að hann var færður þangað.
Næsti leikur Keflvíkinga er gegn Grindavík í 9. umferð Símadeildarinnar á mánudag.