Keflvíkingar eiga bestu skyttuna og mesta háloftafuglinn
Keflvíkingar fóru sigri hrósandi frá Stjörnuleiknum í körfubolta karla sem haldinn var um helgina. Keflvíkingar sigruðu bæði í þriggja stiga keppninni og troðslukeppninni sem haldnar eru samhliða leiknum. Magnús Þór Gunnarsson sigraði þriggja stiga keppnina eftir framlengingu og Billy Baptist sigraði troðslukeppnina með glæsilegum tilþrifum.
Hér má sjá tilþrif frá leiknum frá SportTV.