Keflvíkingar bikarmeistarar í 7. sinn
Keflavík sigraði á síðasta mótinu í Bikarmótaröð taekwondosambandsins í gær. Keflvíkingar unnu einnig heildarstigakeppnina sem eru heildarárangur yfir öll bikarmót tímabilsins og vörðu þannig bikarmeistaratitilinn sem þeir hafa unnið sjö sinnum.
Keflvíkingum tókst þetta þrátt fyrir að það vantaði nokkra af bestu keppendum deilarinnar á þetta lokamót.
Adda Paula Ómarsdóttir og Ágúst Kristinn Eðvarðsson, bæði úr Keflavík voru valin bestu keppendur mótsins og vel að því komin með gullverðlaun í báðum keppnisgreinum.
Ármenningar voru í 2. sæti í heildarstigakeppninni og Afturelding í því þriðja.
Hluti taekwondo hópsins með Helga Rafni Guðmundssyni þjálfara liðsins.