Keflvíkingar bæta við sig erlendum leikmanni
Keflvíkingar hafa styrkt sig fyrir lokaátökin í Iceland Express deildinni. Shanika Butler hefur gengið til liðs við Keflavíkurstúlkur og er henni ætlað að styrkja liðið enn frekar fyrir komandi baráttu í bikarkeppninni og Íslandsmótinu.
Shanika Butler hefur síðustu fjögur tímabil spilað með háskólaliði Little Rock Arkansas; UALR Trojans með góðum árangri. Hún var m.a. valin varnarmaður ársins í Sun Belt deildinni á síðasta tímabili, en Shanika skoraði að meðaltali 7,6 stig í leik á síðasta tímabili, hirti 4,4 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.