Keflvíkingar á topp Inkasso deildarinna
Keflavík sigraði Fram 1:0 í Inkasso deildinni í kvöld á Laugardalsvellinum. Leikurinn fór rólega af stað og gerðist ekkert markvist í fyrrihálfleik. Keflvíkingar byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og uppskáru mark strax á fyrstu mínútum hálfleiksins. Það var Hólmar Örn Rúnarsson skoraði markið með skalla eftir smá klafs í teig Framara. Eftir markið sóttu liðin til skiptist, en mörkin urðu ekki fleiri og því voru það Keflvíkingar sem fóru með öll stigin. Með sigrinum komst Keflavík á topp deildarinnar með 21 stig. Næsti leikur Keflavíkur er heimaleikur og er hann þriðjudaginn 11. júlí.