Keflavíkurstúlkur unnu góðan sigur á Hamri og jöfnuðu 1-1
„Ég er gríðarlega stoltur af stúlkunum. Þær voru ekki í takti í fyrri hálfleik en komu til baka í síðari hálfleik og uppskáru góðan sigur. Við höfum unnið Hamar í Hveragerði og nú er það næsta markmið,“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflvíkinga eftir sigur þeirra á Hamri í annarri viðureign liðanna í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar í körfubolta í Toyota höllinni í kvöld. Lokatölur urðu 77-70.
„Þetta var frábært. Það kom ekki annað til greina en að vinna. Við komum sterkar inn í síðari hálfleik með vörnina sem okkar aðal vopn,“ sagði Birna Valgarðsdóttir. besti leikmaður Keflavíkur í kvöld. Hún lenti í villuvandræðum í fyrsta leikhluta og var komin með 3 villur eftir 3 mínútur og var þá tekin út af. Ekki beint það sem Jón Halldór vildi sjá en svona er körfuboltinn stundum, óútreiknanlegur. En Birna kom gríðarlega sterk inn í leikinn seint í þriðja leikhluta og lét strax til sín taka með þristum og mikilli baráttu. Innkoma hennar var gríðarlega mikilvæg og skipti sköpum fyrir Keflavík sem náði þá yfirhöndinni í leiknum. j
„Ég ætlaði ekki að fara að sitja á tréverkinu allan leikinn. Það var gaman að koma inn á aftur og ná að setja strax ofan í góðar körfur. Við mætum dýrvitlausar í Hveragerði á föstudaginn og ætlum okkur að vinna þann leik,“ sagði Birna.
Hamarsstúlkur leiddu allan fyrri hálfleik og Keflvíkurdömurnar söknuðu Birnu en náðu að fara í leikhlé með fimm stig í mínus. Rannveig Randversdóttir dró vagninn fyrir heimamenn og skoraði 10 stig í hálfleiknum og barðist vel. Bryndís Guðmundsdóttir, ein lykilleikmanna Keflavíkur var ekki að finna sig í stigaskorun og munar um minna en hún bætti sig þó í síðari hálfleik.
Keflavíkurstúlkur jöfnuðu strax leikinn í þriðja leikhluta en þær náðu forskoti í síðari helming fjórða leikhluta og enduðu á því að vinna með sjö stigum 77-70.
Birna skoraði mest, 21 stig, þó hún hafi ekki náð nema að vera inn á nema þriðjung tímans. Rannveig skilaði 15 stigum og stóð sig mjög vel og hefur verið vaxandi í síðustu leikjum. Kristi Smith var drjúg í lokin og endaði með 12 stig en var ekki góð á heildina litið. Bryndís skoraði 9 og Svava Stefándóttir 7, Pálína 6, Hrönn Þorgrímsdóttir 5 og Halldóra Andrésdóttir tvö stig.
Að venju var Julia Demirer atkvæðamest hjá Hamri en hún skoraði 16 stig. Koren Schram (15) og Kristrún Sigurjónsdóttir (13) eru einnig alltaf góðar og þessar þrjár þurfa Keflavíkurstúlkur að varast í næstu leikjum.
Keflavík sýndi það í þessum leik að þær hafa verið vaxandi nú síðla vetrar og eru til alls líklegar í baráttunni um titilinn. Til þess þurfa þær þó að leika betri varnarleik allan tímann. Það er ekki víst að það dugi bara helminginn af leiknum.
Ljósmyndir: Páll Orri og Páll Ketilsson.
Videoumfjöllun væntanleg.
Myndir: Efst fagna Keflvíkingar í leikslok. Fyrir miðju er Rannveig Randversdóttir að skora tvö af 15 stigum sínum í leiknum. Neðst má sjá Birnu Valgarðsdóttur á leiðinni upp að körfu. Stuttu síðar lá boltinn í körfuhringnum.