Bygg
Bygg

Íþróttir

Þriðjudagur 1. júní 2004 kl. 15:08

Keflavíkurstúlkur leika í Bikarnum í kvöld

Meistaraflokkur kvenna tekur á móti liði ÍA í VISA-bikarnum í kvöld.  Leikurinn hefst á Keflavíkurvelli kl. 20.

Keflvíkingar hvetja fólk til að mæta á völlinn og styðja stelpurnar. Lið ÍA leikur nú í 1. deild en hefur yfirleitt verið í fremstu röð í kvennaboltanum. Það er því að ljóst að stelpurnar okkar fá verðugt verkefni í kvöld, en þær voru að leika vel í deildarbikarnum í vor og eru til alls líklegar.

Fyrsti leikurinn í Íslandsmótinu er svo næsta föstudag þegar liðið fær Hauka í heimsókn. Þessi lið hafa leikið marga hörkuleiki undanfarin ár og verður þessi varla nein undantekning. Leikurinn hefst kl. 20.
Bílakjarninn
Bílakjarninn