Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflavíkurstúlkur í úrslit
Laugardagur 19. nóvember 2005 kl. 13:55

Keflavíkurstúlkur í úrslit

Keflavíkurstúlkur eru komnar í úrslit Powerade bikarins eftir sigur á ÍS, 78-50, í undanúrslitum í dag. Sigurinn var sannfærandi svo ekki sé meira sagt, en staðan eftir fyrsta leikhluta var 21-4 fyrir Keflavík.

Í samtali við Víkurfréttir sagði Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari stúlknanna, að þær hefði verið að leika afar vel og í raun klárað leikinn í upphafi. "Það má segja að þetta hafi verið okkar besti leikur í vetur".

Keflvíkingar mæta Haukum í úrslitum þann 10. des.


Tölfræði leiksins

Ath! Fyrr í dag birtist röng stigatala úr leiknum og er beðist velvirðingar á þeim mistökum

Bílakjarninn
Bílakjarninn