Keflavíkurstúlkur í efstu deild innanhúss
 Kvennalið Keflavíkur átti góðu gengi að fagna í 2. deild Íslandsmótsins innanhúss sem haldið var í Laugardalshöll um helgina. Þær unnu sinn riðil með þremur öruggum sigrum og léku við Grindavík um sæti í 1. deild að ári.  Þann leik unnu stelpurnar einnig örugglega og komust þar með upp um deild.

Úrslit leikja hjá liðinu urðu þessi:
Keflavík - Ægir: 5-0
Keflavík - Fram: 5-0
Keflavík - Sindri: 7-1
Keflavík - Grindavík: 5-2
Af keflavik.is
VF-mynd úr safni