Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Keflavíkurstúlkur hafa fengið góðan liðstyrk
Föstudagur 13. febrúar 2009 kl. 10:50

Keflavíkurstúlkur hafa fengið góðan liðstyrk

Margrét Ingþórsdóttir skrifaði á dögunum undir tveggja ára samning við úrvalsdeildarlið Keflavíkur.                 

Margrét sem spilaði með fyrstudeildarliði ÍA á síðustu leiktíð er mjög efnilegur markvörður og verður Keflvíkingum mikill styrkur á komandi sumri en eins og áður hefur komið fram í fréttum hefur Keflavíkurliðið orðið fyrir mikilli blóðtöku frá síðasta sumri. Margrét er Sandgerðingur og þekkir því vel til þjálfara síns sem þjálfaði hana í yngriflokkum Reynis og síðar GRV.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


---
Á myndinni frá vinstri talið, Andrés Hjaltason formaður kvennaráðs Keflavíkur, Margrét Ingþórsson markmaður og Elvar Grétarsson þjálfari.