Keflavíkurstúlkur enn ósigraðar

Keflavík vann útisigur á Hamri í Hveragerði með 81 stigi gegn 70, þar sem meistaraefnin lentu í miklu basli með sprækar heimastúlkur allt þar til í síðasta leikhluta þegar þær sigur loks framúr. Þess má þó geta að TaKesha Watson lék ekki með Keflvíkingum, frekar en Bryndís Guðmundsdóttir, sem meiddist á hné fyrir skömmu og verður frá úr tímabilið.
Pálína Gunnlaugsdóttir var stigahæst Keflvíkinga með 19 stig og Margrét Kara Sturludóttir var með 18 stig og 12 fráköst. LaKiste Barkus, fyrrum leikmaður Keflavíkur var stigahæst í liði Hamars með 25 stig.
Tölfræði leiksins
Í Vesturbænum unnu KR-ingar góðan sigur á UMFG, 83-75, þar sem góður endasprettur réði úrslitum. Grindavík var yfir í hálfleik, 41-43.
Monique Martin og Hildur Sigurðardóttir fóru fyrir KR-ingum, en Joanna Skiba og Tiffany Roberson voru stigahæstar Grindvíkinga.
Tölfræði leiksins
Staðan í deildinni
VF-mynd úr safni/Þorgils