Keflavíkurstúlkur burstuðu bikarmeistarana
Keflavík sigraði ÍS, 96:39, í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gær. Keflavíkurstúlkur réðu lögum og lofum í leiknum og áttu bikarmeistarar ÍS aldrei möguleika gegn sterkum heimastúlkum. Staðan í hálfleik var 52-26 en heimastúlkur höfðu yfir 33-9 eftri 1. leikhluta.Kristín Blöndal var atkvæðamest í liði Keflavíkur með 23 stig og Erla Þorsteinsdóttir var með 19. Keflavíkurstúlkur höfðu tryggt sér deildarmeistaratitilinn fyrir leikinn og því er í raun eina spurningin hve stórt bilið milli 1. og 2. sætisins verður.