HSS
HSS

Íþróttir

Keflavíkursigur í risaslag
Fimmtudagur 3. júlí 2008 kl. 21:42

Keflavíkursigur í risaslag



Keflavík  vann glæsilegan stórsigur á FH í 8-liða úrsltium VISA-bikars karla í kvöld, 3-1.

Leiksins var beðið með nokkurri eftirvæntingu þar sem liðin tvö eru í toppsætum Landsbankadeildarinnar og eru auk þess sigurvegarar síðustu tveggja ára í VISA-bikarnum. Til að toppa allt munu þessi lið mætast að nýju í Landabankadeildinni á sunnudag.

Leikurinn á Sparisjóðsvelli í kvöld hófst fjörlega, bæði lið tefldu fram sterkum sveitum, en hjá FH hófu Tryggvi Guðmundsson, Arnar Gunnlaugsson og Matthías Vilhjálmsson þó leikinn á bekknum.

FH voru nokkuð betri rétt framan af og sköpuðu nokkur hálffæri þar sem Atli Guðnason skaut t.d. framhjá.

Fyrsta alvörufærið leit dagsins ljós á 14. mínútu þar sem Davíð Viðarsson skaut yfir úr markteig. Sannkallað dauðafæri þar sem Keflvíkingar máttu prísa sig sæla að vera ekki lentir undir.

Þeir sneru leiknum sér svo í hag stuttu síðar. Guðmundur Steinarsson komst í gott færi eftir undirbúning Símuns Samúelssen, en FH-ingar bægðu hættunni frá um stundarsakir.

Þeir fengu hins vegar ekki rönd við reist í næstu sókn þegar Símun stakk boltanum inn á Guðmund sem renndi boltanum í netið úr þröngu færi hægra megin við markið.

Keflavík voru komnir í ökumannssætið og gengu á lagið.

Bakvörðurinn Guðjón Árni Antoníusson jók forskotið á 24. mínútu þar sem hann fékk boltann frá Símun. Hann komst inn fyrir vörnina og lagði boltann laglega framhjá Daða. Það sem gerir markið eftirtektarverðara er sú staðreynd að Guðjón var þegar þarna kom við sögu með ljótan skurð á augabrún eftir samstuð í vítateig nokkrum mínútum fyrr.

Fátt markvert gerðist fram að hálfleik, en þó máttu Keflvíkingar þakka Ómari Jóhanssyni, markmanni sínum sem átti fræbæran leik, þegar hann sló sendingu utan af kanti, sem stefndi beint í markið, yfir þverslána.

Keflívkingar héldu undirtökunum í upphafi seinni hálfleiks. Kristján Guðmundsson, þjálfari, ætlaði greinilega ekki að pakka í vörn þar sem hann skipti Herði Sveinssyni inn fyrir Magnús Sverri Þorsteinsson.

Hólmar Örn Rúnarsson komst í ákjósanlegt færi á 58. mínútu eftir sendingu Harða, en skaut langt yfir úr vítateig.

FH-ingar skiptu inn stórskotaliðinu af bekknum þegar rúmar 20 mínútur lifðu af leiknum og þyngdust sóknir þeirra í kjölfarið án þess þó að þeir sköpuðu sér nein veruleg færi. Þau sem komu á markið varði Ómar lipurlega.

Eitthvað varð þó undan að láta og eftir mikinn hamagang í vítateig heimamanna á 85. mínútu minnkaði Matthías Vilhjálmsson leikinn og stefndi allt í spennandi lokamínútur.

FH lagði allt í sóknina en við það opnaðist glufa í vörnina og Patrik Redo gerði út um leikinn á 89. með þriðja markinu.

Bikarmeistararnir voru úr leik og Keflavík hafði sigur í þessum fyrsta stórleik sumarsins í íslenska fótboltanum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn



VF-myndir/Þorgils