Sjómannakveðjur 1
Sjómannakveðjur 1

Íþróttir

Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik
Mánudagur 15. nóvember 2004 kl. 22:58

Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik

Keflavík bar sigurorð af Grindvíkingum í Intersport-deildinni í kvöld, 84-73. Leikurinn, sem fór fram í Íþróttahúsinu við Sunnubraut, var afar kaflaskiptur og var sigur Keflvíkinga hreint ekki eins öruggur og lokatölur gefa í skyn.

Grindvíkingar komu sterkir inn í upphafi leiks þar sem Páll Axel Vilbergsson skoraði fyrstu 8 stig sinna manna sem náðu nokkurra stiga forskoti.

Keflvíkingar svöruðu þá með krafti þar sem Nick Bradford og Gunnar Einarsson spiluðu vel á báðum endum vallarins. Heimamenn léku glimrandi bolta þar sem þeir skoruðu grimmt og náðu mest 14 stiga forskoti. Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 33-20 og virtust öll völd í höndum Keflvíkinga.

Annar leikhluti hófst á svipuðum nótum þar sem Keflavík komst í 15 stiga forystu, 38-23. Þá var sem þeim væri fyrirmunað að skora körfu, en Nick Bradford var á bekknum lungann úr fjórðungnum.
Þá fóru Grindvíkingar að finna sig betur í sóknarleiknum, sem hafði ekki verið upp á marga fiska, og söxuðu muninn niður í sex stig áður en Keflvíkingar settu síðustu körfu hálfleiksins. Staðan í hálfleik, 42-34 heimaliðinu í vil.

Munurinn hélst um og yfir fimm stigin í þriðja leikhluta þar sem Bradford setti 10 stig fyrir Keflavík, en Grindvíkingar voru öllu jafnari í stigaskori. Ánægjulegt var þó að sjá Guðlaug Eyjólfsson, stórskyttu Grindvíkinga, koma inn eftir meiðsli, en hann hitti úr tveimur mikilvægum þriggja stiga skotum fyrir sína menn.

Morten Szmiedowicz setti þrjú mikilvæg vítaskot á lokasekúndum þriðja leikhluta og minnkaði muninn í þrjú stig, 60-57, fyrir lokakaflann.

Síðasti fjórðungurinn var æsispennandi þar sem Grindvíkingar minnkuðu minn í 1 stig strax í upphafi. Eftir það náðu Keflvíkingar góðum kafla þar sem þeir náðu mest 7 stiga mun með 3ja stiga körfu frá Arnari Frey Jónssyni. Eftir það urðu enn kaflaskipti í leiknum þegar gestirnir jöfnuðu af miklu harðfylgi, 69-69, þegar um 5 mínútur voru til leiksloka.
Næstu mínútur voru rafmagnaðar af spennu en Keflvíkingar sýndu hvað í þeim bjó á lokakaflanum og skoraði síðustu 11 stig leiksins og vörðu sigurhrinu sína í úrvalsdeild á heimavelli.

Grindavíkingar eru alls ekki í góðum málum eftir tapið og hafa nú einungis unnið þrjá af sjö leikjum sínum í deildinni, en Keflavík er í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Njarðvíkingum.

Leikurinn einkenndist lengstum af mistækum sóknarleik, en margir lykilmenn naðu sér ekki á strik. Þeirra á meðal voru Páll Axel Vilbergsson, sem sást lítið að undanskyldum fyrstu tveimur mínútunum, Darrel Lewis sem setti aðeins 20 stig, þar af átta í lokafjórðungnum.

Þá hafa Anthony Glover og Magnús Þór Gunnarsson oft átt betri daga hjá Keflavík en það kom ekki að sök að lokum.

Maður leiksins var hins vegar Grindvíkingurinn Justin Miller sem skoraði 23 stig og tók heil 19 fráköst.

Falur Harðarson, aðstoðarþjálfari Keflavíkur, var ekki á eitt sáttur í leikslok.
„Þetta hafðist í restina, plúsinn við leikinn er að við unnum en mínusinn er sá að við spiluðum ekki nægilega vel. Við vorum í svæðisvörn allan leikinn og það var góð æfing fyrir Evrópukeppnina.“

Nökkvi Már Jónsson, hjá Grindavík sagði pressuvörn Keflvíkinga í fyrri hálfleik hafa komið sínum mönnum í opna skjöldu.
„Við máttum þakka okkar sæla fyrir að vera inni í leiknum í hálfleik. Við vorum að taka ótímabær skot þegar við náðum loksins að brjóta pressuna. Í seinni hálfleik náum við hægt og bítandi að koma okkur inn í leikinn og ég er mjög ánægður með mína menn að yfirstíga þá hindrun og síðustu mínúturnar er þetta jafn leikur. Að hluta til er þetta óheppni og hluti af þessu er líka meira sjálfstraust hjá Keflavík en okkur.“

Tölfræði leiksins

Þróun leiksins:
1. leikhluti: 33-20
0-3, 1-3, 1-6, 3-6, 5-6, 7-6, 9-6, 9-8, 10-8, 10-11, 12-11, 14-11, 16-11, 16-13, 18-13, 18-15,  20-15, 22-15, 25-15, 27-15, 29-15, 31-17, 31-18, 31-20, 33-20.

2. leikhluti: 9-14
33-22, 35-22, 35-23, 38-23, 38-25, 38-27, 40-27, 40-29, 40-31, 40-33, 40-34, 42-34.

3. leikhluti: 18-23
42-37, 44-37, 44-39, 46-39, 48-39, 50-39, 50-41, 50-43, 53-43, 53-46, 55-46, 55-47, 56-47, 56-49, 56-51, 58-51, 60-51, 60-54, 60-57.

4. leikhluti: 24-16
60-59, 62-59, 63-59, 63-61, 65-61, 68-61, 68-63, 68-65, 69-65, 69-67, 69-69, 71-69, 71-71, 73-71, 73-73, 75-73, 77-73, 79-73, 81-73, 84-73.
VF-myndir/Hilmar Bragi Bárðarson

Bílakjarninn
Bílakjarninn