Keflavíkurliðið fullt af Njarðvíkingum
Njarðvíkingar svara fyrir sig
Í aðdraganda stórleiks Keflvíkinga og Njarðvíkinga í körfunni hafa Keflvíkingar verið duglegir að skjóta á granna sína á samskiptamiðlinum Snapchat eins og við greindum frá fyrir skömmu. Keflvíkingar skotfastir á Snapchat.
Nú hafa Njarðvíkingar svarað fyrir sig. Mynd sem sjá má hér að ofan, gengur nú á milli stuðningsmanna á samfélagsmiðlunum þar sem sjá má sex liðsmenn Keflvíkinga klædda í Njarðvíkurbúning. Það vill svo til að fimm leikmenn núverandi Keflavíkurliðs og þjálfarinn Sigurður Ingimundarson hafa allir verið samningsbundnir Njarðvík á einhverjum tímapunkti.
„Þetta er Keflavíkurliðið sem mætir okkur á morgun, plús tveir kanar“ hafði einn stuðningsmaður Njarðvíkur á orði. Það verður spennandi að sjá hvort þetta komi til með að gíra leikmenn og áhorfendur upp fyrir leikinn sem hefst klukkan 19:15 í TM-höllinni í kvöld.