Keflavík vann nágrannaslaginn
Njarðvík tók á móti nágrönnum sínum í Keflavík í Ljónagryfjunni, en síðasti leikur Domino´s-deildar kvenna í körfu fór fram í dag. Keflavík fór með sigur af hólmi í leik dagsins og urðu lokatölur leiksins 69-78, Njarðvík náði aðeins að sigra einn leik í deildinni í vetur og er því ljóst að þær munu ekki leika í úrvalsdeildinni að ári. Keflavík endaði hins vegar í öðru sæti deildarinnar og mætir liðið Val í fjögurra liða úrslitum, úrslitakeppninnar sem hefst 2. apríl en nánari upplýsingar um leikjaröðun koma í næstu viku. Keflavík er með heimaleikjarétt í einvígi þeirra og Vals.
Margrét Sæmundsdóttir tók meðfylgjandi myndir í Ljónagryfjunni í dag.
Stigahæstu leikmenn Njarðvíkur voru, Shalonda R. Winton 24 stig, 21 fráköst, 11 stoðsendingar og 3 varin skot, Hulda Bergsteinsdóttir 16 stig og 6 fráköst, Ína María Einarsdóttir 12 stig, María Jónsdóttir 12 stig og 6 fráköst og Björk Gunnarsdótir 5 stig, 4 fráköst og 7 stoðsendingar.
Stigahæstu leikmenn Keflavíkur voru, Brittanny Dinkins 35 stig, 9 fráköst, 6 stoðsendingar og 5 stolnir, Thelma Dís Ágústsdóttir 20 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 6 stig og 6 fráköst, Katla Rún Garðarsdóttir 6 stig og Birna Valgerður Benónýsdóttir 5 stig.