Keflavík vann Meistarakeppni KKÍ
Keflavíkurstúlkur höfðu sigur á grönnum sínum úr Grindavík í Meistarakeppni KKÍ sem fram fór í Toyotahöllinni í Reykjanesbæ í dag. Lokatölur leiksins urðu 73-68 fyrir Keflavík, en leikurinn var spennandi þó bæði lið hafi ekki náð að sína sinn besta leik í dag.
Bæði lið ætluðu greinilega að selja sig dýrt og var hart barist í vörn sem sókn. Bæði liðin höfðu misst erlendu leikmenn sína í vikunni og það hafði nokkur áhrif á sóknarleik beggja liða. Grindavík náði mest átta stiga forustu í stöðunni 19-27 í 1. leikhluta, en Keflavík náði að minnka muninn niður í fjögur stig áður en leikhlutinn var allur. Svava Stefánsdóttir opnaði annan leikhluta með góðum þrist og náði strax yfirhöndinni í leiknum. Keflavíkurstúlkur náðu að þétta vörnina og leiddu með fjórum stigum þegar haldið var inn í síðari hálfleik, 47-43.
Það var mikil barátta í síðari hálfleik og var töluvert minna skorað en í þeim fyrri. Bæði lið gerðu sig sekan um of mörg mistök í sókninni og var það mjög einkennandi í gegnum þriðja leikhluta. Það segir kannski sína sögu að bæði lið skoruðu aðeins tíu stig í þessum leikhluta og var því staðan 57-53 fyrir lokafjórðungin. Petrúnella Skúladóttir náði að minnka muninn í eitt stig með góðri þriggja stiga körfu í upphafi fjórðungsins og þær gulklæddu komu ákveðnar til leiks. Ólöf Helga Pálsdóttir kom Grindvíkingum svo yfir í stöðunni 59-60, en það reyndist vera í síðasta skiptið sem Grindavík komst yfir í leiknum.
Keflavík hafði yfirhöndina þó að aldrei hafi munað mikið á liðunum. Keflavík landaði því öðrum titli sínum á þessu keppnistímabili, og það á tveimur vikum. Grindavíkurstúlkur geta þó borið höfuðið hátt því þær voru alltaf inn í leiknum og gáfu grönnum sínum úr Keflavík lítið eftir.
Í liði Keflavíkur var Pálína Gunnlaugsdóttir atkvæðamest með 18 stig, tók sjö fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Svava Stefánsdóttir kom næst með 17 stig, en hún stal einnig sex boltum í dag. Hjá Grindavík voru Petrúnella Skúladóttir, Ingibjörg Jakobsdóttir og Helga Rut Hallgrímsdóttir allar með 11 stig.
Tölfræði
VF-MYNDIR/JJK