Keflavík vann Grindavík
Keflavík og Grindavík mættust á dögunum í Lengjubikarnum í knattspyrnu en undirbúningstímabil stendur nú sem hæst í fótboltanum. Keflvíkingar fögnuðu 2-0 sigri á grönnum sínum en það voru þeir Endre Ove Brenne og Elías Már Ómarsson sem skoruðu mörk Keflvíkinga í leiknum.
Keflavík er nú í 2. sæti í Riðli 1 í A-deildinni með 10 stig eftir sex leiki. Grindavík er í 4. sæti með 9 stig eftir 5 leiki.