ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Íþróttir

Keflavík vann grannaslaginn í Lengjudeild kvenna
VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
fimmtudaginn 19. júní 2025 kl. 21:45

Keflavík vann grannaslaginn í Lengjudeild kvenna

„El classico“ í Lengjudeild kvenna fór fram í Njarðvík í kvöld en þá mættust hið sameiginlega lið Grindavíkur/Njarðvíkur og Keflavík. Leikurinn fer ekki í sögubækur fyrir fjölmörg marktækifæri, staðan í hálfleik var 0-0 og allt stefndi í markalaust jafntefli en Ariela Lewis skoraði eina mark leiksins fyrir Keflavík á 71. mínútu og þar við sat.

Það var greinilegt á uppleggi beggja liða að það átti ekki að tapa leiknum og þ.a.l. var ekki mikið um opin færi. Eitthvað segir blaðamanni að ef þessi leikur hefði verið leikinn svona í tíu skipti, að markalaust jafntefli hefði orðið niðurstaðan oftar en ekki en slíkar vangaveltur eru auðvitað tilgangslausar og Keflavíkurkonur náðu sér í mikilvæg stig upp á framhaldið. Fyrir leikinn Grindavík/Njarðvík í öðru sæti með 16 stig en Keflavík ekki með nema 9 stig og því má kannski segja að um sannkallaðan sex stiga leik hafa verið að ræða milli grannanna. 

Keflavík virðist því vera búið að finna taktinn, hefur unnið tvo leiki í röð eftir að hafa gert jafntefli við topplið ÍBV í leiknum þar á undan. Grindavík/Njarðvík sem fór algerlega pressulaust inn í mótið, getur vel við unað með árangur sinn til þessa en í spjalli við blaðamann eftir leikinn, kom skýrt fram hjá þjálfara liðsins, Gylfa Tryggvasyni, að frammistaða sé nafn leiksins hjá hans liði í sumar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, þjálfari Keflavíkur: Kristrún Ýr Hólm, fyrirliði Keflavíkur: Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur: Viktoría Sól Sævarsdóttir, fyrirliði Grindavíkur/Njarðvíkur:

Grindavík/Njarðvík - Keflavík (0:1) // Lengjudeild kvenna 19. júní 2025