Keflavík vann botnliðið (Video)
Keflvíkingar hrósuðu sigri gegn botnliði Hauka í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik í gær. Lokastaðan var 81-77 fyrir Keflvíkinga eftir kaflaskiptan leik sem einkenndist meira af baráttu en skemmtun.
Haukar, sem eru enn án stiga eftir sex leiki, berjast eins og ljón í öllum leikjum sem þeir taka þátt í, en það hefur ekki borið árangur. Keflvíkingar léku án AJ Moye sem tók sér frí vegna ökklameiðsla, og munar um minna, sérstaklega þar sem Zlatko Gocevski var ekki að skila af sér í sókninni.
Af þeim sökum var sóknareikurinn á köflum af fljótfærni þannig að Haukar komust inn í leikinn trekk í trekk. Þeir voru m.a.s. komnir alllangt yfir í 3. leikhluta áður en Keflvíkingar náðu sér aftur á strik og skoruðu 10 stig í röð.
Í síðasta leikhluta var mikil spenna þar sem Keflvíkingar héldu naumri forystu allt til enda.Þ
eir Gunnar Einarsson og Magnús Þór Gunnarsson voru stigahæstir Keflvíkinga, Magnús með 19 stig og Gunnar með 14, en þar á eftir komu þeir Sverrir Þór Sverrisson og Arnar Freyr Jónsson. Auk þess stóðu þeir Jón Norðdal Hafsteinsson og Elentínus Margeirsson fyrir sínu.
Hjá Haukum var DeeAndre Hulett allt í öllu og er þar frábær körfuknattleiksmaður á ferð. Kristinn Jónasson átti einnig góðan leik og var drjúgur undir körfunum.
VF-Myndir/Þorgils