Keflavík valtaði yfir Njarðvík
Það fór lítið fyrir spennu í leik toppliðs Keflavíkur og meistara Njarðvíkurstúlkna í Dominos-deild kvenna í kvöld þegar þær fyrrnefndu rúlluðu í 30 stiga sigur. 84-54 lokastaða leiksins heimastúlkum í Keflavík í vil og þær eru áfram ósigraðar í deildinni eftir 11 umferðir en Njarðvík situr í næstneðsta sæti með þrjá sigra úr 11 leikjum.
Leikurinn hófst fjörlega og virtust Njarðvíkurstúlkur ætla að selja sig dýrt þetta kvöldið. Liðin skiptust á því að skora og jafnt var á öllum tölum framan af. Strax í öðrum fjórðungi fór þó að skilja á milli í stigaskorun og Keflavíkurstúlkur tóku öll völd á vellinum. Það var lítið að gerast hjá Njarðvíkurstúlkum á þessum tíma og í hálfleik leiddu heimastúlkur með 21 stigi, 48-27.
Það breytist lítið í seinni hálfleik þar sem heimastúlkur bættu bara í og héldu áfram að þjarma að meisturunum. Lítið var um svör frá Njarðvík gegn góðum leik Keflavíkur sem líta óneitanlega vel út þessa daganna. Það virtist vanta alla kókómjólk í Njarðvíkurliðið að þessu sinni þær voru alls ekki að spila vel og höfðu litla trú á verkefninu. Lele Hardy var þeirra líflegust og barðist af krafti en henni skorti aðstoð frá sínum með spilurum. Gegn Keflavík á heimavelli í þeim ham sem þær voru í gær er kannski lítið hægt að gera.
Fjórði leikhluti var einungis formsatriði að klára og sigur Keflavíkur aldrei í hættu. Varla er hægt að taka eina út úr liði Keflavíkur og velja mann leiksins því liðsheildin var að skila sínu þetta kvöldið. Lele Hardy var enn og aftur í sérflokki hjá Njarðvík og það var þá helst Salbjörg Sævarsdóttir sem lét til sín taka einnig í liði Njarðvíkur. Aðrar þurfa að spýta í lófana og spila betur en þær gerðu þetta kvöldið.
Keflavík-Njarðvík 84-54 (23-17, 25-10, 24-14, 12-13)
Keflavík: Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 18/5 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 14/13 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 14/5 fráköst, Jessica Ann Jenkins 12/6 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 9/4 fráköst/5 stolnir, Bryndís Guðmundsdóttir 8/6 fráköst, Telma Lind Ásgeirsdóttir 6, Katrín Fríða Jóhannsdóttir 3.
Njarðvík: Lele Hardy 19/19 fráköst/6 stolnir, Salbjörg Sævarsdóttir 12/7 fráköst/4 varin skot, Emelía Ósk Grétarsdóttir 6, Eyrún Líf Sigurðardóttir 6, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 5, Sara Dögg Margeirsdóttir 4, Ásdís Vala Freysdóttir 1, Ína María Einarsdóttir 1.