Keflavík úr leik í Poweradebikarnum
Keflvíkingar máttu sætta sig við ósigur gegn Þór Ak ureyri í fyrstu umferð Po weradebikarkeppni karla í körfuknattleik. Þórsarar gerðu góða ferð suður og höfðu 80-90 sigur í Sláturhúsinu.
Skallagrímur lagði Stjörnuna eftir framlengdan leik í Borgarnesi þar sem lokatölurnar voru 87-84. Skallagrímur mun því mæta Grindavík í 2. umferð og Þór mætir Snæfell í Stykkishólmi.