Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflavík tók toppsætið fyrir jólafrí
Miðvikudagur 19. desember 2007 kl. 23:23

Keflavík tók toppsætið fyrir jólafrí

Keflavík endurheimti í kvöld toppsætið í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik eftir öruggan 100-81 sigur á Hamri. Með sigrinum eru Keflavíkingar á toppi deildarinnar með 20 stig en KR og Grindavík eru í 2.-3. sæti með 18 stig.

 

TaKesha Watson gerði 33 stig í Keflavíkurliðinu í kvöld og tók auk þess 8 fráköst fyrir Keflavík.

 

Hamar hékk í Keflavík framan af leik en Keflvíkingar stungu af í síðari hálfleik í Sláturhúsinu og fóru að lokum með öruggan sigur af hólmi. LaKiste Barkus gerði 31 stig, tók 11 fráköst og gaf 5 stoðsendingar í liði Hamars.

 

Tölfræði leiksins

 

VF-Mynd/ [email protected]Rannveig Kristín Randversdóttir sækir að körfu Hamars í kvöld.

Bílakjarninn
Bílakjarninn