Keflavík tekur á móti Fylki í kvöld
Landa heimamenn fyrsta sigrinum?
5. umferð Pepsí deildar karla hefst í kvöld með þremur leikjum.
Keflvíkingar taka á móti Fylki á Nettóvellinum en Keflvíkingum hefur gengið illa framan af móti. Aðeins 1 stig er komið í hús af 12 mögulegum og hefur liðinu aðeins tekist að koma boltanum í mark mótherjans tvisvar sinnum í þessum fjórum leikjum.
Þrátt fyrir slæma byrjun getur staðan í deildinni breyst hratt með nokkrum góðum úrslitum en aðeins 6 stig skilja að liðin í 3. -12. sæti Pepsí deildarinnar. Það ætti því að vera auðvelt verkefni fyrir Kristján Guðmundsson að mótivera sitt lið fyrir leikinn gegn Fylki í kvöld.
Fylkismenn sitja í 8. sæti deildarinnar með 5 stig og hafa leikið ágæta knattspyrnu á köflum með þá Ingimund Níels Óskarsson og Albert Brynjar Ingason fremsta í flokki.
Eflaust velta margir fyrir sér hvernig Kristján Guðmundsson og Máni Pétursson koma til með að stilla upp liðinu í kvöld en nokkur hreyfing hefur verið á byrjunarliði Keflavíkur í síðustu leikjum.
Leikurinn verður flautaður á kl. 19:15 í kvöld og ætla Keflvíkingar að tendra uppi í grillinu við TM höllina við Sunnubraut á slaginu 18:00 þar sem hamborgarar verða framreiddir á góðu verði.