Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflavík tekur á móti Eyjapeyjum í dag
Sunnudagur 22. ágúst 2004 kl. 12:55

Keflavík tekur á móti Eyjapeyjum í dag

Keflavík tekur á móti ÍBV í Landsbankadeild karla í dag klukkan 18.

Leikurinn skiptir miklu máli fyrir bæði lið þar sem þau eru að reyna að festa sig í sessi í toppbaráttunni.

Liðin hafa ást 10 sinnum við á Keflavíkurvelli frá árinu 1993 og hafa heimamenn unnið fjórum sinnum, Eyjamenn þrisvar og þrisvar hefur leik lokið með jafntefli. ÍBV vann fyrri leik liðanna í sumar 4-0 á Hásteinsvelli.

Keflvíkingar mæta til leiks með fullskipað lið þar sem Haraldur Guðmundsson er kominn úr leikbanni og eru til alls líklegir.
VF-mynd/Þorgils Jónsson: Úr fyrri leik liðanna í sumar
Bílakjarninn
Bílakjarninn