Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflavík tapaði fyrir norðan
Mánudagur 18. júlí 2011 kl. 21:23

Keflavík tapaði fyrir norðan

Nú rétt í þessu lauk leik Keflvíkinga og Þórsara fyrir norðan í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Leiknum lauk með sigri Þórsara í kaflaskiptum leik og urðu lokatölur 2-1 en jafnræði var með liðunum í leiknum.

Keflvíkingar komust yfir með marki frá Hilmari Geir Eiðssyni eftir rúmlega 10 mínútur en Þórsarar jöfnuðu eftir 26 mínútur.

Það var svo í lokin sem að Þórsarar náðu að stela stigunum þremur með marki þegar 3 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Keflvíkingar fengu færi til að jafna en allt kom fyrir ekki.

Mynd: Hilmar Geir gerði mark Keflvíkinga í kvöld.

Bílakjarninn
Bílakjarninn