Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Keflavík styrkir deildir félagsins
Þriðjudagur 23. september 2003 kl. 22:03

Keflavík styrkir deildir félagsins

Á aðalfundi Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags þann 25. febrúar 2003 lagði aðalstjórn félagsins fram eftirfarandi tillögu:  Aðalfundur KEFLAVÍKUR íþrótta- og ungmennafélags haldinn þriðjudaginn 25. febrúar 2003 í félagsheimili Keflavíkur Hringbraut 108 samþykir að veita aðalstjórn félagsins heimild til að styrkja deildir félagsins að heildarupphæð 2.000.000- krónur sem tekið er úr sjóðum félagsins. Aðalstjórn er falið að deila upphæðinni á milli deilda félagsins.

Aðalstjórn er búin að selja fasteignina  Skólaveg 32 sem félagið átti og notað var sem félagsheimili og skrifstofa. Nú hefur verið tekið í notkun nýtt félagsheimili og skrifstofa að Hringbraut 108. Með sölunni  skapaðist rúm til að greiða út peninga til deilda og styrkja þannig fjárhag þeirra til að halda úti öflugu og metnaðarfullu íþróttastarfi. Styrknum er skipt á milli deilda miðað við iðkendafjölda um áramótin 2002 og 2003. Iðkendafjöldi félagsins er 1327 einstaklingar í sjö deildum.

f.h. aðalstjórnar Keflavíkur

Einar Haraldsson formaður.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024