Keflavík sigraði Tindastól 1:0
Kvennalið Keflavíkur gerði góða ferð á Sauðárkrók í gær þegar þær sigruðu Tindastól 1:0 í 1. deild kvenna. Það var Katla María Þórðardóttir sem skoraði mark Keflavíkur á 73. mínútu. Keflavík, HK/Víkingur og ÍA eru einu þrjú liðin sem hafa unnið alla leiki sína. Næsti leikur Keflavíkur er á móti ÍR á heimavelli laugardaginn 27. maí.