Keflavík sigraði KA
Keflavík sigraði KA 4 – 2 í deildarbikarnum í knattspyrnu í gær. Davíð Hallgrímsson gerði 2 mörk í leiknum og þá skoruðu þeir Magnús Þorsteinsson og Baldur Sigurðsson sitt hvort markið.
Næsti leikur Keflavíkur í deildarbikarnum er þann 11. mars n.k. gegn KR kl. 15:00 í Reykjaneshöllinni.