Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflavík sigraði í Hólminum
Föstudagur 19. október 2007 kl. 21:40

Keflavík sigraði í Hólminum

Keflavík lagði Snæfell í Iceland Express deild karla í körfuknattleik í kvöld, 109-113, í Stykkishólmi. Keflvíkingar höfðu frumkvæðið mestallan leikinn og leiddu á tímabili með 20 stigum, en heimamenn komu sér inn í leikinn og knúðu fram framlengingu. Þar voru Keflvíkingar hins vegar sterkari og lönduðu góðum sigri.

 

Keflvíkingar hafa því unnið sína fyrstu tvo leiki, en Snæfellingar tapað sínum leikjum, þeim fyrri gegn UMFN í Ljónagryfjunni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn