Keflavík sigraði Fótbolta.net mótið eftir vítaspyrnukeppni
Keflavík tryggði sér sigur á Fótbolta.net mótinu en liðið lagði ÍBV í úrslitaleik í dag. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma en Keflvíkingar höfðu betur í vítaspyrnukeppni.
Bæði lið fengu einnig ágætis færi áður en fyrsta markið leit dagsins ljós á 34. mínútu er dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu á Einar Orra Einarsson við litla hrifningu Keflvíkinga. Andri Ólafsson fyrirliði Eyjamanna fór á punktinn og skoraði.
Eyjamenn leiddu í leikhléi en Keflvíkingar mættu grimmir til leiks í síðari hálfleik og minnstu munaði að þeir næðu að jafna á 51. mínútu. Eftir fyrirgjöf barst boltinn á fjærstöng þar sem vinstri bakvörðurinn Brynjar Örn Guðmundsson var mættur en skot hans hafnaði í stönginni.
Keflvíkingar áttu fleiri marktilraunir og þeir uppskáru mark um miðjan síðari hálfleik. Sigurbergur Elísson átti þá skot fyrir utan teig og boltinn hafði viðkomu í tveimur varnarmönnum á leið í netið. Skrautlegt mark en boltinn hafði síðast viðkomu í Haraldi Frey Guðmundssyni og hann fær því markið skráð á sig.
Eftir þetta fengu liðin fá færi og því þurfti grípa til vítaspyrnukeppni. Þar misnotuðu Eyjamenn þrjár vítaspyrnur en Keflvíkingar tvær og lokatölur 4-3.
Keflavík 1 - 1 ÍBV (4-3 eftir vítaspyrnukeppni)
0-1 Andri Ólafsson ('34, víti)
1-1 Haraldur Freyr Guðmundsson ('68)
Vítaspyrnukeppnin:
1-1 Ómar Jóhannsson ver frá Tryggva Guðmundssyni
2-1 Guðmundur Steinarsson skorar
2-2 Rasmus Christiansen skorar
3-2 Haraldur Freyr Guðmundsson skorar
3-2 Albert Sævarsson skýtur framhjá
3-2 Albert ver frá Sigurbergi Elíssyni
3-3 Finnur Ólafsson skorar
3-3 Albert ver frá Frans Elvarssyni
3-3 Eiður Aron Sigurbjörnsson skýtur framhjá
4-3 Grétar Ólafur Hjartarson skorar