Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflavík semur við Nicolai og Viktor
Mánudagur 8. október 2007 kl. 10:31

Keflavík semur við Nicolai og Viktor

Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur framlengt samning sinn við Danann Nicolai Jörgensen, sem var einn af betri leikmönnum Keflavíkurliðsins á nýliðinni leiktíð. Það er fagnaðarefni fyrir Keflvíkinga, því orðrómur var á kreiki um að önnur lið hér á landi hafi borið víurnar í leikmaninn. Samningurinn er til tveggja ára.

Þá sömdu Keflvíkingar einnig við hinn 16 ára Viktor Gíslason, einnig til tveggja ára. Viktor er einn af efnilegri leikmönnum liðsins og er búist við því að hann láti fljótlega að sér kveða með meistaraflokki.

Myndir/keflavik.is: 1- Jörgensen ásamt Rúnari V. Arnarsyni, formanni deildarinnar og Valgeiri J. Guðmundssyni, framkvæmdastóra. 2- Viktor við Keflavíkurfánann

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn