Keflavík semur við erlendan leikmann
Lið Keflavíkur í körfuknattleik hefur samið við Denis Ikovlev sem mun leika með liðinu á næsta vetri. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Denis þessi er af úkraínsku bergi brotinn en lék með Nevada-Reno háskólanum í vetur þar sem liðið gerði góða hluti og var í 10. sæti á styrkleikalista háskólaliða.
Hann er um tveir metrar á hæð, góður varnarmaður og sterk skytta sem er einnig notaður undir körfunni.
Hann er væntanlegur hingað til lands lok ágúst og mun eflsust styrkja Keflavíkurliðið, sem ætlar sér stærri og meiri hluti en á síðasta ári.
Keflvíkingar hafa þegar styrkt hópinn með tveimur leikmönnum, þeim Sigurði Sigurbjörnssyni og Vilhjálmi Steinarssyni. Sigurður er 25 ára bakvörður, uppalinn í Keflavík, en lék með Grindavík á síðasta tímabil. Vilhjálmur er 24 ára framherji 190 cm. á hæð og hefur allan sinn feril leikið með Haukum.
Mynd: Ikovlev er hér til varnar