Föstudagur 5. október 2001 kl. 08:19
Keflavík Reykjanesmeistarar

Keflvíkingar tryggðu sér í gærkvöldi Reykjanesmeistaratitilinn í körfuknattleik þegar liðið sigraði Hauka 92-84. Damon Johnson fór mikinn í liði Keflvíkinga og skoraði 35 stig, Guðjón Skúlason skoraði 15 og Davíð Jónsson 13.Hjá Haukum var Marel Guðlaugsson með 18 stig og Ingvar Guðjónsson með 13. Staðan í hálfleik var 49-24 Keflvíkingum í vil þannig að síðari hálfleikurinn skilaði 60 stigum fyrir Hauka og ekki síst fyrir tilstilli Jóns Arnars Ingvarssonar sem lék lítið í fyrri hálfleik en sendi átta stoðsendingar í síðari hálfleik auk þess að skora sex stig og ná sjö fráköstum.
Njarðvík lagði Grindavík
Njarðvíkingar tryggðu sér sætið á Reykjanesmótinu í körfuknattleik þegar liðið sigraði Grindavík, 96-74. (Staðan eftir leikhluta: 25-20; 50-34; 71-59). Brenton Birmingham fór mikinn í leiknum og skoraði 32 stig fyrir Njarðvík en þeir Logi Gunnarsson og Teitur Örlygsson skoruðu 21 hvor. Hjá Grindavík var Roni Baily atkvæðamestur með 19 stig, þar af 17 í seinni hálfleik, Helgi Jónas Guðfinnsson skoraði 18 og Páll Axel Vilbergsson 16 stig, öll í fyrri hálfleik.