Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Íþróttir

Keflavík og Njarðvík töpuðu sínum leikjum
Veigar Páll Alexandersson skilaði nítján stigum í hús fyrir Njarðvík í gær. Mynd úr safni VF/JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 13. desember 2024 kl. 09:05

Keflavík og Njarðvík töpuðu sínum leikjum

Hvorki Keflavík né Njarðvík höfðu erindi sem erfiði í Bónusdeild karla í körfuknattleik í gær. Keflavík beið lægri hlut fyrir toppliði Stjörnunnar í Garðabæ og Njarðvíkingar hlutu sömu örlög gegn Tindastóli á Króknum.

Stjarnan er efst í deildinni, Tindastóll í öðru og svo koma Suðurnesjaliðin; Njarðvík, Grindavík og Keflavík í þriðja til fimmta sæti. Grindavík á leik til góða gegn Val í kvöld.

Tindastóll - Njarðvík 94:76

(28:16, 19:17, 23:20, 24:23)

Njarðvík: Evans Raven Ganapamo 27/11 fráköst, Veigar Páll Alexandersson 19/6 fráköst, Dominykas Milka 12/15 fráköst, Khalil Shabazz 9, Mario Matasovic 5/11 fráköst, Isaiah Coddon 4, Snjólfur Marel Stefánsson 0, Alexander Smári Hauksson 0, Brynjar Kári Gunnarsson 0, Guðmundur Aron Jóhannesson 0, Sigurður Magnússon 0, Sigurbergur Ísaksson 0.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Stjarnan - Keflavík 97:93

(20:28, 30:22, 22:17, 25:26)
Igor Maric gerði nítján stig gegn Stjörnunni í gær.

Keflavík: Ty-Shon Alexander 22/5 fráköst, Igor Maric 19, Sigurður Pétursson 17/4 fráköst/5 stoðsendingar, Remu Emil Raitanen 14/5 fráköst, Jaka Brodnik 12/6 stoðsendingar, Halldór Garðar Hermannsson 5, Marek Dolezaj 2/6 fráköst, Jarell Reischel 2/6 fráköst, Jakob Máni Magnússon 0, Ismael Herrero Gonzalez 0, Nikola Orelj 0, Daniel Eric Ottesen Clark 0.

Bílakjarninn
Bílakjarninn